Um okkur
Við sem stöndum að Erninum höfum langa reynslu af því að vinna með syrgjendum á öllum aldri. Við teljum mjög mikilvægt að finna vettvang þar sem hægt er að vinna með börnum og unglingum á friðsælum stað yfir heila helgi. Með þessu erum við að styrkja mikilvæga úrvinnslu til framtíðar fyrir börn og unglinga á Íslandi sem hafa orðið fyrir sorg og áföllum.
Í stjórn Arnarins eru:
- Lilja Úlfarsdóttir, sálfræðingur og kennari. Gjaldkeri.
- Anna Ýr Böðvarsdóttir, lögfræðingur. Ritari.
- Heiðrún Jensdóttir, matráður og upphafsmanneskja verkefnisins. Formaður.
Verkefnastjórar Arnarins eru Matthildur Bjarnadóttir prestur og sorgarráðgjafi og Jóna Hrönn Bolladóttir, prestur.
Vídalínskirkja í Garðabæ er bakhjarl verkefnisins.
Umfjöllun um starfið
Sjálfboðaliðar
Allir sem koma að verkefninu, gefa vinnu sína, annað væri alltof mikill kostnaður. Við erum gríðarlega þakklát því frábæra fólki sem hefur lagt verkefninu lið. Í sjálfboðaliðahópnum eru prestar, djákni, guðfræðingar, nemar í félagsráðgjöf, sálfræðingar, matráðar, hárgreiðslukonur, tannlæknir, sjúkraþjálfari og listamenn.