Um okkur

Við sem stöndum að Erninum höfum langa reynslu af því að vinna með syrgjendum á öllum aldri. Við teljum mjög mikilvægt að finna vettvang þar sem hægt er að vinna með börnum og unglingum á friðsælum stað yfir heila helgi. Með þessu erum við að styrkja mikilvæga úrvinnslu til framtíðar fyrir börn og unglinga á Íslandi sem hafa orðið fyrir sorg og áföllum.

Í stjórn Arnarins eru:

  • Lilja Úlfarsdóttir, sálfræðingur og kennari. Gjaldkeri.
  • Anna Ýr Böðvarsdóttir, lögfræðingur. Ritari.
  • Heiðrún Jensdóttir, matráður og upphafsmanneskja verkefnisins. Formaður.

Verkefnastjórar Arnarins eru Matthildur Bjarnadóttir prestur og sorgarráðgjafi og Jóna Hrönn Bolladóttir, prestur.

Vídalínskirkja í Garðabæ er bakhjarl verkefnisins.

Sjálfboðaliðar

Allir sem koma að verkefninu, gefa vinnu sína, annað væri alltof mikill kostnaður. Við erum gríðarlega þakklát því frábæra fólki sem hefur lagt verkefninu lið. Í sjálfboðaliðahópnum eru prestar, djákni, guðfræðingar, nemar í félagsráðgjöf, sálfræðingar, matráðar, hárgreiðslukonur, tannlæknir, sjúkraþjálfari og listamenn.