Næsta samvera Arnarins í Vídalínskirkju í Garðabæ verður miðvikudaginn 16. október kl.17:15.  Þar ætlar dr. Díana  Ósk Óskarsdóttir að tala um meðvirkni við foreldra/forráðamenn.  Það verður unnið í hópum með börnunum og unglingunum.  Síðan verður boðið upp á ilmandi kjúklingasúpu.  Við viljum minna á að Örninn er með fésbókarsíðu þar sem við birtum einnig fréttir og myndir, en hún heitir Örninn-minningar-og styrktarsjóður.